Search

David Layton

Í lok júní kom góð heimsókn alla leið frá Seattle, en það var saxafónleikari á leið í Evrópureisu. Hann kíkti við á 5. hæðinni, spilaði og smitaði fólk með gleði sinni.

Ræktun

Í vor sáðum við nokkrum fræjum og forræktuðum  innandyra. Svo í júní fengum við myndarlegan ræktunarkassa sem stendur í garðinum okkar. Í kassann fóru jarðaberjaplöntur, gulrætur, minta, radísur, klettasalat, graslaukur og salat. Einnig settum við kartöflur í potta. Innandyra vaxa svo tómataplönturnar okkar grimmt og eru farnir að myndast nokkrir...

Kvennahlaupið 2016

Í dag mánudaginn 30. maí þreyttum við Kvennahlaup ÍSÍ hér í Skjóli. Við fengum 2 herra í að aðstoða okkur við að ýta hjólastól og dreifa verðlaunapeningum. Við vörum mjög heppin með veður, sól og blíða. Einnig fengum við hvatningu af svölunum.

Vöffluboð í Laugaskjóli

Við vorum með skemmtilega samveru inn á Laugskjóli mánudaginn 23. maí. Vorum með spurninga leik spjall og gleði. Svo enduðum við á að baka vöfflur og snæða saman. 

Hattadagur

Við héldum hinn árlega hattadag föstudaginn var þann 20. maí. Flest allir klæddust mismunandi höttum sem gaf tilverunni líf og lit. Svo eftir hádegi kom Gerðubergskórinn í heimsókn og söng fyrir okkur. Það var mikið um húllumhæ og þegar mest var, þá var um 70 gestir í salnum og um...

Spurt og svarað

Spurt og svarað ????? Er liður sem er orðinn fastur hjá okkur og vinsæll. Spurningum er kastað yfir hópinn og svo svara þeir sem geta. Skemmtilegar umræður skapast í kringum spurningarnar og margt sem rifjast upp. Sem sagt mikil fræðsla í leiðinni. Við reynum hafa hafa fjölbreyttar spurningar. Dæmi um...

Boccia

Á Þriðjudögum kl 14:00 er Boccia í boði sem allir eru velkomnir. Mikill keppnisandi og tilþrif ráða ríkjum.

Vöffluboð á 6. hæð

Við komum saman, undir dillandi tónlist og vöffluilmi, á 6. hæð. 2 flottar konur á hæðinni sáu um baksturinn. Góð og skemmtileg samvera.

Samsöngur

Fimmtudaginn 28. apríl hittumst við í salnum og sungum saman nokkur vorlög. Yndisleg stund.

sumarskemmtun

Miðvikudaginn 20. apríl komum við saman inn í sal til að kveðja veturinn og taka á móti sumrinu með sól í hjarta. Lesin voru sumarljóð, sumarsaga og speki um sumardaginn fyrsta. Svo var þurrkað rykið af vor- og sumarlögum. Lilja, Ólöf Dóra og Unnur Brynja í iðjuþjálfun sáu um lestur,...