Í Kjördæmaviku Alþingis heimsóttu þingmenn Sjálfstæðisflokksins Eirhamra. Eybjörg Helga Hauksdóttir, forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra og Ingi Þór Ágústsson, forstöðumaður þjónustu á Eirhömrum og Hömrum, kynntu þar umfangsmikla og samþætta starfsemi Eirar á sviði öldrunarþjónustu. Sérstök áhersla var lögð á tilraunaverkefnið Gott að eldast, sem hófst í Mosfellsbæ þann 1....
Þingmenn Sjálfstæðisflokks kynntu sér starfsemi Skjóls
Í tilefni Kjördæmaviku Alþingis, þegar hefðbundnir þingfundir liggja niðri og þingmenn heimsækja kjördæmi sín til að kynna sér ýmiss konar starfsemi, komu þingmenn úr Sjálfstæðisflokknum í heimsókn á Skjól.Eybjörg Helga Hauksdóttir, forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra, tók á móti gestunum og kynnti starfsemi sjálfseignarstofnunarinnar Skjóls og þá þjónustu sem þar...
Kaupmannasamtök Íslands færa Eir rausnarlega gjöf
Eir tók nýverið á móti veglegri gjöf frá Kaupmannasamtökum Íslands sem mun nýtast íbúum heimilisins með margvíslegum hætti. Gjöfin samanstendur af fallegum útihúsgögnum, þremur HUR styrkþjálfunartækjum og vinnustól til iðjuþjálfunar. Útihúsgögnin eru ætluð til almennrar notkunar fyrir íbúa, en þjálfunartækin munu jafnframt nýtast íbúum hjúkrunarheimilisins, skjólstæðingum endurhæfingadeildar og íbúum öryggisíbúða...
Nýjar hjólaleiðir í sjúkraþjálfun
Nýlega fékk sjúkraþjálfun Eirar aðgang að Motiview, þar sem sýndar eru hjólaleiðir um allan heim. Þetta hefur gert mikla lukku í æfingasalnum, nú hjólar fólk ýmist um miðbæ Reykjavíkur, um æskuslóðirnar úti á landi eða úti í heimi.
Hátíðardagskrá af tilefni 25 ára afmælis Eirar
Sjúkrahúsabangsar
Verkefni vetrarins í vinnustofu iðjuþjálfunar er að prjóna svokallaða sjúkrabílabangsa. Markmiðið er að prjóna bangsa fyrir börn sem þurfa á aðstoð sjúkraflutningamanna að halda. Bangsinn hefur þann tilgang að veita huggun og fær barnið að eiga bangsann. Fyrir heimilisfólkið skiptir það líka máli að taka þátt í verkefni sem hefur...
Harmonikkuhljómsveitin Pétur og pæjurnar
Harmonikkuhljómsveitin Pétur og pæjurnar héldu tónleika á Torginu við mikla hrifningu íbúa,starfsmanna og annarra gesta. Við þökkum þeim ástsamlega fyrir komuna og vonum að þau heimsæki okkur sem fyrst aftur.
Súzukipíanóskóli Grafarvogs kom í heimsókn
Margt var um manninn á Torginu þegar börnin úr Súzukipíanóskólanum í Grafarvogi heimsóttu okkur. Við þökkum Elínu og nemendum hennar kærlega fyrir komuna og hlýhug í okkar garð með að heiðra okkur með nærveru sinni.
Karlakór Kjalnesinga kom og söng fyrir íbúa
Karlakór Kjalnesinga heiðraði okkur með nærveru sinni á aðventunni eins og undanfarin ár. Íbúar og aðrir tónleikagestir voru yfirsig hrifnir af drengjunum sem sungu með einskæri snilld. Við óskum þeim gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári. Þökkum hjartanlega heimsóknir þeirra á líðnum árum.
Helgileikur frá Brekkuborg og heimsókn Íslandsbanka vina
Leikskólabörnin á Brekkuborg komu í sína árlegu heimsókn á Eir. Þau sýndu okkur helgileik að sinni einskæru snilld og bræddu með því mörg íbúahjörtu. Vinir okkar frá Íslandsbanka komu og lásu fallega jólasögu og sungu með okkur í samsöng jólalög við undirleik hins ástsæla vinar Eirar Einars Jónssonar. Á eftir...


