Search

Bíósýning

Í síðustu viku vorum við með bíó sýningu þar sem við sýndum fyrri helming heimildarmyndarinnar "Með hangandi hendi" um Ragga Bjarna. Myndin er gerð í tilefni 75 ára afmælistónleika Ragga Bjarna og þar fer Raggi yfir sinn feril og ræðir við gamla félaga ásamt því að gamlar klippur af Ragga...

Ísdagur í sólinni

Það var aldeilis kátt í höllinni þegar sólin var hvað heitust þriðjudaginn 26. júlí. Ekki létum við þetta blíðskapaveður framhjá okkur fara heldur fliktust íbúar, gestir og starfsfólk út á verönd og létu sólina baka sig, sett var góð tónlist á og allir fengu ís. Allt stefnir í annan ísdag á miðvikdeginum ef spá gegnur eftir....

Söngstund á Eir

Það er kátt á hjalla á fimmtudögum þegar íbúar hittast við undirleik Einars Jónssonar í hópsöng. Gleðin er mikil hjá íbúum sem taka vel undir þannig að tíminn hreinlega flýgur frá okkur.  

Þjóðdansasýning

  Ísland er að halda Norðurlandamót í þjóðdönsum og íslenska þjóðdansafélagið hafði samband við okkur og bauðst til að koma með sýningu. Það voru tveir hópar sem dönsuðu fyrir okkur, annar frá Noregi og hinn frá Finnlandi. Það voru í kring um 80 heimilismenn sem komu niður á torg og...

Söngstund Eirar

Það var fámennt en góðmennt hjá okkur í söngstundinni í dag, þar sem sungin voru uppáhalds lög margra viðstaddra sem tóku vel undir. Alltaf jafn gaman hjá okkur.  

Vöfflukaffi

Nú var komið að vöfflukaffi á 3 hæð norður og tóku heimilsmenn þátt í því að baka vöfflur. Kátt var á hjalla og nutu allir vöfflukaffisins.    

Landsnetskórinn í heimsókn

Á hverju vori koma farfuglarnir til landsins eins og Lóan, Spóinn, Krían og fleiri kunnugir fuglar. Það er eins með kór starfsmanna Landsnets og kórstjórann Ingveldi Ýr, ekki gleymdu þau okkur þetta vorið frekar en þau fyrri. Við erum þeim mjög þakklát fyrir að hugsa til okkar og koma með...

Söngstund á Eir

Einar Jónsson kemur reglulega og spilar og syngur með heimilsfólkinu öllum til mikillar ánægju. 80 manns mættu og sungu við undirleik Einars. Söngstjórn var í höndum Kristbjargar. Myndir frá söngstund Eirar: