Karlakór Kjalnesinga heiðraði okkur með nærveru sinni á mánudaginn var. Þeir stóðu alveg undir væntingum en þeir hafa komið síðastliðin ár með jólatónleika hingað á Eir. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og einnig öllum íbúum, aðstandendum og öðrum gestum sem sáu sér fært að mæta.
Gerðubergskórinn í heimsókn
Gerðubergskórinn sótti okkur heim og kunnum við þeim kærar þakkir fyrir. Kórinn var eins og nýútsprungin rós og voru þau klöppuð upp aftur og aftur af heimilsfólkinu. Gleðin skein af hverju andliti við fluttning laganna sem voru vel valin fyrir íbúa heimilisins.
Boccia
Það þurfti enginn hláturjógatíma eftir Boccia vikunnar, mikil gleði með dillandi hlátri heyrðist um allan salinn. Spilarar léku af list eins og í öll hin skiptin.
Raggi Bjarna syngur á Eir
Raggi Bjarna skemmti heimilisfólki og gestum á Eir í vikunni og vakti mikla gleði. Meistarinn tók lög eins og "Tondelejo", "Dagný" og rappaði meira að segja og fékk salinn með sér. Mjög vel heppnuð skemmtun og var þétt setið á Torginu góða. Þökkum við honum kærlega fyrir komuna og alla...
Málþing SFV
Málnig SFV: Er vilji til breytinga? 18 okt. kl. 13.30. - 15.30 á hótel Natura Til að sjá betur textann þá stækka upplausn.
Bleikt bingó
Haldið var bleikt bingó í tilefni af árveknisátaki krabbameinsfélagsins bleikum október. Að sjálfsögðu var bleika slaufan aðalvinningur dagsins og var hinn heppni hrókur alls fagnaðar með vinninginn. Einnig var karfa með góðgæti og var hún skreytt bleiku.
Bleiki dagurinn 14 október 2016
Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í hinum bleika októbermánuði. Föstudaginn 14. október hvetjum við alla sem viðkoma Eir og Hömrum til að sýna samstöðu með því að klæðast/ vera með eitthvað bleikt.
Tónleikar á Kjarvalstöðum
Iðjuþjálfun og félagsstarf fóru með nokkra heimilismenn á Kjarvalsstaði til að sjá tónleika með Ragnheiði Gröndal og manni hennar Guðmundi Péturssyni gítarleikara. Flutt voru falleg lög af nýjum diski Ragnheiðar ásamt laginu Ást sem hún gerði svo vinsælt árið 2003, nokkrir tóku undir með því lagi. Þessir tónleikar voru þeir...
Töðugjöld
Fimmtudaginn 15. september fóru fram Töðugjöld og slægjur á Eir sem heppnuðust mjög vel. Allir skemmtu sér konunglega. Það voru gerðar upphitunaræfingar undir leiðsögn Sigrúnar Jóhannsdóttur sjúkraþjálfara, dansað, hlegið, sungið og smakkaðar nýjar íslenskar kartöflur með smjöri. Fyrir dansi lék Þórður Marteinsson á harmonikku við mikinn fögnuð íbúa og kunnum við honum miklar þakkir...
Söngstund
Í dag sungum við lög sem tilheyra haustinu. Það var mikil gleði sem myndaðist með nýjan lagalista og var tekið vel undir í hverju lagi.