Það voru metnaðarfullir hattaeigendur sem mættu á hið sívinsæla hattaball. Þórður Marteinsson lék af sinni alkunnu snilld á harmonikku og voru margir sem stigu dans í takt við tónlistina.
Söngstund á Torginu
Frábær mæting var á söngstund með Maríu á Eir í dag og mikið sungið við undirleik Einars Jónssonar. Það er mikið til í þessu vísnakorni eftir Guðmund Kr. Sigurðsson Ljúfur söngur léttir, kætir lyftir huga yfir þraut. Söngur nærir, sífellt bætir svífur inn á töfrabraut. Söngstundirnar eru vikulegur viðburður,...
Valentínusardagurinn á Eir
Víða um heim var haldið uppá dag elskenda þann 14. febrúar sem við túlkum sem dag ástvina og dag til að minna okkur á að elska lífið og okkur sjálf. Af því tilefni hélt Karlakórinn Stefnir tónleika á Eir við mikinn fögnuð elskenda og ástvina. Við þökkum Stefni kærlega fyrir komuna...
Fimmtudags söngskemmtunin
Kátt var að vengju á söngskemmtun Eirar á fimmtudaginn síðastliðinn. Kristbjörg var píanóleikaranum okkar til halds og traust í söngnum. Þessar stundir er alltaf skemmtilegar fyrir bæði heimilsfólkið og vistmenn.
Þorrablót á bóndadaginn
Tekið var vel á móti Þorranum á Bóndadegi, hann boðinn velkominn að ganga í garð með alvöru Þorrablóti. Í hádeginu var boðið uppá þorramat og svo var að sjálfsögðu ball á eftir. Hljómsveitin Hafrót lék fyrir dansi við mikinn fögnuð íbúa og starfsmanna. Það var vel yfir hundrað íbúar sem...
Léttsveit Reykjavíkur með tónleika á Eir
Léttsveit Reykjavíkur heiðraði okkur með nærveru sinni á yndislegum jólatónleikum á Torginu þann 13. desember. Ánægju raddir heyrðust víða um húsið eftir þessa hátíðlegu tónleika. Takk kærlega fyrir komuna Léttsveit.
Handprjónaðar dúkkur að gjöf
Okkur voru færðar handprjónaðar glaðlegar dúkkur frá konu sem vildi ekki láta nafn sitt getið en hún vildi minnast móður sinnar með þessum hætti. Móðir hennar hefði átt afmæli á afhendingar deginum. Kunnum við henni miklar þakkir fyrir að hugsa til okkar. Dúkkurnar koma sér vel og höfum við varla...
Leikskólabörn í heimsókn á Eir
Elstu börnin frá leikskólanum Brekkuborg komu og sýndu helgileik á hinni árlegu aðventustund Eirar. Góðvinur okkar Einar Jónsson spilaði á píanó og íbúar, starfsmenn og aðrir gestir sungu með.
Börn frá Suzukipíanóskólanum spiluðu á Eir
Börn frá Suzukipíanóskólanum í Grafarvogi ásamt Elínu Hannesdóttur kennara og aðstandendum sínum komu í heimsókn og leyfðu okkur að heyra falleg jólalög.
Söngvarar framtíðarinnar í heimsókn
Söngvarar framtíðarinnar heimsóttu Eir í vikunni og sungu fyrir íbúa og starfsmenn. Þau komu frá söngskóla Sessýar, og voru á aldrinum 5-14 ára. Við óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni.