Search

25 ára afmæli Eirar

Í ár er aldarfjórðungur frá því að fyrstu íbúar fluttu inn á Eir hjúkrunarheimili. Í tilefni af því sýndu forsetahjónin okkur þann heiður að sækja afmælisfagnað heimilisins. Íbúar og gestir nutu tónlistar og ræðuhalda og börn á leikskólanum Brekkuborg í næsta nágrenni við Eir sungu söngva. Í lokin var boðið uppá...

Skjólsstræti

 Það er búið að lífga upp á ganginn á milli Skjóls og Hrafnistu. Tilvalið að kíkja og staldra við. :)

Tónleikar á torginu 15. ágúst

Tónleikar verða haldnir á Torginu miðvikudaginn 15. ágúst kl 14:00 Við fáum í heimsókn til okkar Dúóið Ýr og Agga sem samanstendur af flautuleikaranum Kristínu Ýri Jónsdóttur og fiðluleikaranum Ragnheiði Ingunni Jóhannsdóttur. Fyrr í sumar hlutu þær styrk úr samfélagssjóði Eflu verkfræðistofu til að fara á hjúkrunarheimili og flytja tónlist...

Afmælismánuður

Í tilefni  30 ára afmælis Skjóls í janúar s.l. þá ætlum við að vera í æfmælisgírnum í maí og bjóða upp á fjölbreytta viðburði. Sjá auglýsingar í lyftu og hæðum. Rúsínan í pylsuendanum verður  svo kaffihúsastemning í salnum þann 31. maí, kl 14:45 - 16:30.

Dagþjálfunin á Eir hefur uppfærst til ársins 2018 frá og með í dag!

Í morgun komu tveir hressir herramenn frá Kiwanisklúbbnum Höfða í Grafarvogi og færðu deildinni 65" SmartTV að gjöf frá klúbbnum ! Höfði hefur áður gefið okkur tvær Ipad spjaldtölvur og þær hafa gagnast mjög vel í starfinu, aukið möguleika og fjölbreytni til muna. Kunnum við þeim okkar bestu þakkir fyrir...