Search

Basar

28. nóvember héldum við basar þar sem margir hlutir sem búnir voru til á vinnustofunni á árinu, voru til sölu. Einnig vorum við með kaffihúsastemningu þar sem kaffi og vöfflur voru til sölu. 2 stöllur úr Laugaskjóli sáu um baksturinn.

Spilaklúbbur

Í haust byrjuðum við með spilaklúbb sem og aldeilis gaman að taka í spi,l vist , mann og fleira.

Dagur íslenskrar tungu

Á degi íslenskrar tungu  16. nóvember fengum við góða heimsókn. Svava Knútur kom og tók nokkur lög og las fyrir okkur.

Karlakór Kjalnesinga kom og söng fyrir íbúa

Karlakór Kjalnesinga heiðraði okkur með nærveru sinni á aðventunni eins og undanfarin ár. Íbúar og aðrir tónleikagestir voru yfirsig hrifnir af drengjunum sem sungu með einskæri snilld. Við óskum þeim gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári. Þökkum hjartanlega heimsóknir þeirra á líðnum árum.

Helgileikur frá Brekkuborg og heimsókn Íslandsbanka vina

Leikskólabörnin á Brekkuborg komu í sína árlegu heimsókn á Eir. Þau sýndu okkur helgileik að sinni einskæru snilld og bræddu með því mörg íbúahjörtu. Vinir okkar frá Íslandsbanka komu og lásu fallega jólasögu og sungu með okkur í samsöng jólalög við undirleik hins ástsæla vinar Eirar Einars Jónssonar. Á eftir...

Tónleikar með Svanhildi Jakobsdóttur

Svanhildur Jakobsdóttir  og félagar komu og héldu tónleika á Eir við mikla hrifningu íbúa, aðstandenda og starfsmanna. Góð stemmning myndaðist í salnum þegar hún tók lagið "Segðu ekki nei" og fleiri gamla góða slagara. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og vonum að þau komi sem fyrst aftur.

Gerðubergskórinn heimsótti Eir

Góðvinir okkar í Gerðubergskórnum héldu tónleika á Eir við mikinn fögnuð áheyrenda. Yfir 100 manns sáu sér fært að mæta á tónleikana og er það með betri mætingu fram að þessu. Þökkum við kórnum kærlega fyrir komuna.