Search

Halldór Friðrik rithöfundur heimsótti Eir

Rithöfundurinn Halldór Friðrik Þorsteinsson kom í A-hús Eirar og las uppúr bók sinni "Rétt undir sólinn" ferðasaga. Íbúar og aðrir áheyrendur voru mjög ánægðir með frásögn hans. Halldór Friðrik ætlar einnig að lesa uppúr bók sinni fyrir íbúa og gesti B-hús, Eirarholts og Eirarhús. Við þökkum honum kærlega fyrir komuna...

Bleiki dagurinn

Bleiki dagurinn var að sjálfsögðu haldinn á Eir og klæddust margir bleiku í tilefni dagsins. Starfsfólk sjúkraþjálfunar á Eir voru sérlega skrautleg eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

Gefins sjöl

Starfsmenn Íslandsbanka unnu að góðgerðarverkefni og hekluðu sjöl til að gefa ýmsum stofnunum og heimilum. Við fengum nokkur litrík og falleg sjöl að gjöf, sem koma að góðum notum í salnum þegar napurt er úti og kuldinn laumar sér inn fyrir.

Ball á Eir

Miðvikudaginn 30.ágúst mætti hljómsveitin Hafrót og spilaði fyrir dansi til þess að fanga komu haustsins. Kátt var á hjalla og mikið dansað og sungið.

Haustdagskrá

Þá er haustið að bresta á eina ferðina enn með til heyrandi vindi og vatni. Fyrir neðan má líta á dagskránna fyrir september ;) [gview file="http://skjol.is/wp-content/uploads/2017/09/sept-2017.docx"]

Uppskeruhátíð

Að morgni miðvikudags fór fríður hópur út að taka upp kartöflur og svo daginn eftir fimmtudaginn 31. ágúst vorum við með uppskeruhátíð. Söngvarinn Ragnar Bjarnason og undirleikari hans Þorgeir Ástvaldsson komu og héldu fjörinu uppi. Að lokum fengu allir nýuppteknar kartöflur með smá smjörklípu að smakka.