Í sumar nýttum við blíðviðrisdaga til að fara út fyrir, eiga góða stund saman og fá okkur ís ;)
Sumarblóm
Þessar myndir eru síðan sumarblómin voru sett niður.
Hlý gjöf frá starfmanni Íslandsbanka
Við á Eir og í Skjóli erum svo heppin að eiga góða vini á góðum stöðum. Vinir okkar hjá Íslandsbanka færðu okkur á dögunum fullan kassa af hekluðum sjölum sem ein starfskona bankans hafði gert. Við sendum þeim hlýjar kveðjur og heimiliskonur og menn hlakka til að sveipa um sig...
Pönnukökuveisla í tilefni afmælis Reykjavíkurborgar
Í tilefni afmælis Reykjavíkurborgar 18. ágúst var slegið til pönnukökuveislu miðvikudaginn 16. ágúst. Starsfmenn iðjuþjálfunar og félagsstarfs ásamt heimilismönnum sáu um að steikja pönnukökurnar sem boðið var upp á, ásamt kexkökum og djúsi. María sem sér um félagsstarfið á Eir las stuttan texta um þróun Reykjavíkurborgar.
Sumarblíða
Veðrið lék við íbúa, gesti og starfsmenn Eirar í vikunni og var því haldin samvera úti í garði. Boðið var upp á pinna ís á mánudegi og þriðjudag var boðið upp á ávaxtadrykk. Þessa blíðviðrisdaga var haft fuglaþema,fuglahljóðaspilið dregið fram ásamt söng um fuglana og sumarið. Við óskum eindregið eftir...
Söngkonan Anna Sigríður og píanóleikarinn Aðalheiður heimsóttu Eir
Met mæting var á Torginu þegar vinkonurnar Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari og Anna Sigríður Helgadóttir söngkona mættu á Eir. Það var mikið hlegið, sungið og trallað á skemmtuninni og fóru allir mjög glaðir á deildar sínar. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sjá þær aftur. Til gamans...
Hin árlega jónsmessuganga
Jónsmessuganga var haldin á Eir í hressandi veðri og var markmið dagsins að efla hreyfingu hjá öllum sem tengjast Eir hjúkrunarheimili. Við fórum í stutta göngu með Stefán Ómar Jakobsson harmonikkuleikara í fararbroddi, héldum svo inn þar sem allir fengu létta hressingu í boði Sónar e.hf. Ylfa sjúkraþjálfari stýrði liðkunaræfingum...
Þjóðhátíðarskemmtun
Við tókum forskot á þjóðhátíð og héldum skemmtun í salnum 15. júní. Byrjað var á upplestri og fróðleik í tenglsum við lýðveldi Íslands. Svo voru sungin ættjarðar- og sumarlög. Svo kom danspar í heimsókn og tóku nokkra dansa. Þau eru 10 ára gömul og búin að æfa síðan þau voru...
Tónlistarkynning og bíó
7. júní tókum við fyrir Ríó Tríó , kynning í máli, myndum og tónlist. Viku síðar vorum við með heimildarmynd um bandið í bíó.
Vöfflukaffi 6. hæð
Í lok maí vorum við með vöfflukaffi á 6. hæðinni. Fyrst komu leikskólabörn í heimsókn. Hlustuðum saman á ævintýrið umHelgu forvitnu. Svo skelltum við í vöfflubakstur og gleði.