Search

Sjómannaball

Sjómannastéttin var heiðruð í tilefni af sjómannadeginum með harmonikkuleik Þórðar Marteinssonar. Að sjálfsögðu voru margir sem mættu í ballskónum stigu dans og sungu með. Mjög vel heppnað sjómannaball eins og sjá má á myndunum hérna fyrir neðan.

Kaffihús á Eir

Dagdeild Borgasel stóð fyrir kaffihúsastemmingu á Torginu á Eir. Auðvitað mætti allt fólkið af dagdeildinni í vöfflur með rjóma, einnig létu íbúar, starfsfólk og aðrir gestir sig ekki vanta í fjörið. Þetta þótt vel til takast og voru margir íbúar og aðstandendur á þeirri skoðun að þetta ætti að vera...

Ball á Eir

Kærar þakkir fyrir frábæra mætingu á ballið í dag. Við höldum að enn einu sinni hafi mætingarmetið verið slegið, amk voru yfir 100 íbúar mættir! Hljómsveitin Hafrót skapaði mikla stemningu ásamt ykkur starfsfólki! Takk fyrir að aðstoða við að bjóða upp og dansa, klappa og brosa. Það vakti miklar tilfinningar hjá mörgum...

Hattadagur

Á morgun föstudaginn 19. maí verður Hattadagur hjá okkur. Þá brjótum við upp daginn með að klæðast höttum. Gerðubergskórinn kemur kl 13:30 og ætlar skemmta okkur með söng. 

Harmonikka á fimmtudagssöngstundinni

Söngstundarinnar er beðið með eftirvæntingu af íbúum og gestum Eirar. Einar fór á kostum á nikkunni síðasta fimmtudag og var mikil ánægja með stundina. Stórvinur Eirar lét sitt ekki eftir liggja frekar en aðra fimmtudaga. Mætti hann með Nikkuna og var mikið fagnað af íbúum, starfsfólki og gestum.   nikkanvideo...

Gjöf frá Siggu

"Góðar gjafir berast reglulega til iðjuþjálfunar og félagsstarfsins á Eir. Um daginn kom hún Sigríður Siggeirsdóttir færandi hendi, fullur vagna af ýmiskonar handavinnudóti. Nú verður sannarlega hægt að finna upp á skemmtilegri afþreyingu, föndri og handavinnu. Við þökkum henni Siggu og dætrum hennar kærlega fyrir gjöfina."

Brugðið á leik

Við erum aldrei of gömul að bregða á leik. Fjárfest var í þessari glæsilegu fallhlíf á dögunum sem þjálfar og gleður líkama og sál. Hér fyrir neðan má sjá myndband af fallhlífinni.  Fallhlíf á myndbandi.