Search

Takmarkanir á heimsóknum – uppfært 7. ágúst 2020

Kæru aðstandendur, Í ljósi aukningar á Covid-19 í samfélaginu þurfum við öll að hjálpast að við að vernda ástvini ykkar og aðra íbúa heimilanna. Sóttvarnalæknir, Landlæknir, Almannavarnir og fleiri sérfræðingar eru sammála um það að SARS-CoV-2, veiran sem veldur COVID-19 sjúkdómnum er komin til að vera og því er nauðsynlegt...

UPPFÆRT: Takmarkanir á heimsóknum

Kæru aðstandendur Samráðshópur á vegum Landlæknisembættisins hefur sent hjúkrunarheimilum tillögur að ráðstöfunum til að grípa til þess að vernda íbúa. Við þurftum að aðlaga fyrri takmarkanir aðeins að þessum leiðbeiningum. Breytingarnar eru feitletraðar:  Ákveðið hefur verið að takmarka þann fjölda sem kemur inn á heimilin á hverjum tíma á þann...

Takmarkanir á heimsóknum – 29. júlí 2020

Kæru starfsmenn og aðstandendur, Í ljósi þess að COVID-19 smitum hefur fjölgað í þjóðfélaginu teljum við nauðsynlegt að bregðast við til að vernda íbúa heimilanna líkt og Landlæknir hvatti hjúkrunarheimili til að gera á fundi Almannavarna í gær 28. Júlí. Ákveðið hefur verið að takmarka þann fjölda sem kemur inn...

Starfsmenn og heimsóknargestir sem koma frá svæðum sem ekki eru skilgreind áhættusvæði

Heil og sæl, Eitt af því sem Covid-19 faraldurinn er að kenna okkur er sveigjanleiki og að bregðast hratt við breytingum. Nýlega gáfu Almannavarnir út nýjar reglur varðandi ferðalög erlendis.  Í framhaldi af því hefur verið ákveðið að: Starfsmenn og heimsóknargestir sem koma frá svæðum sem ekki eru skilgreind áhættusvæði...

Til hamingju með daginn Dóra Ólafsdóttir!!

Dóra Ólafsdóttir íbúi Skjóls hjúkrunarheimilis er 108 ára í dag og um leið elsti núlif­andi Íslend­ing­ur­inn, fædd 6. júlí árið 1912 í Sig­tún­um á Kljá­strönd í Grýtu­bakka­hrepp. Það er okkur mikill heiður að hafa hana Dóru hjá okkur enda afar skemmtileg og hress.  Við óskum Dóru okkar innilega til hamingju...

Jafnlaunavottun 2020-2023: Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hlutu á dögunum jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Vottunin gildir í þrjú ár en eftirlitsúttektir munu fara fram einu sinni á ári. Vottunin er staðfesting á því...

Aflétting takmarkana á heimilunum

Nú er tilslökunum á heimsóknarbanni vegna COVID-19 að fullu lokið við mikla ánægju íbúa og starfsmanna. Um leið og við þökkum ykkur öllum kærlega fyrir samstarfið og hugulsemina við ástvini ykkar á þessum fordæmalausu tímum minnum við á að sem fyrr mega gestir ekki koma í heimsókn ef þeir; Eru...

Bréf til aðstandenda: Reglur varðandi heimsóknir frá og með 4. maí 2020

Ágæti aðstandandi Heimsóknir verða leyfðar inn á Eir, Skjól og Hamra frá og með 4. mai næstkomandi með ákveðnum takmörkunum.  Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ítrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að takmarka þann...

Varðandi heimsóknarbann

Reyjavík 15.04.2020 Varðandi heimsóknarbann Eins og fram kom í gær frá sóttvarnalækni og almannavörnum verður byrjað að aflétta samkomubanni þann 4. maí nk. ef allt gengur að óskum. Samráð verður haft við önnur hjúkrunarheimili um það hvernig heimsóknarbanni verður aflétt á hjúkrunarheimilum.   Við vitum að þetta er erfitt bæði...