Search

Bóndadags herragleði

Á Bóndadaginn voru herrarnir í húsinu boðnir velkomnir í gleði í salnum. Þar var í boði harðfiskur, hákarl, brennivín , djús, söngur, upplestur. Að lokum mættu tvær úr tungum og voru með uppistand. 

Vöfflukaffi 6. hæð

Föstudaginn 13. janúar vorum við með vöfflukaffi á 6. hæð. 2 herrar sáu um baksturinn. Tónlist, gleði og grín voru í fyrirrúmi.

Fimmtudags söngskemmtunin

Kátt var að vengju á söngskemmtun Eirar á fimmtudaginn síðastliðinn. Kristbjörg var píanóleikaranum okkar  til halds og traust í söngnum. Þessar stundir er alltaf skemmtilegar fyrir bæði heimilsfólkið og vistmenn.

Þorrablót á bóndadaginn

Tekið var vel á móti Þorranum á Bóndadegi,  hann boðinn velkominn að ganga í garð með alvöru Þorrablóti. Í hádeginu var boðið uppá þorramat og svo var að sjálfsögðu ball á eftir. Hljómsveitin Hafrót lék fyrir dansi við mikinn fögnuð íbúa og starfsmanna. Það var vel yfir hundrað íbúar sem...

Framundan í jólatíðinni

Mikið hefur verið, í boði, í desember, glaumur og gleði. Í næstu viku, miðvikudaginn 21. desember  verður jólegleði með harmonikkuleikaranum Þórði Marteinssyni. Fimmtudaginn 22. desember verður jólabingó. En Bocciað er komið í jólafrí og byrjar aftur á nýju ári. Sjá dagskrá, fyrir janúar  sem kemur síðar.        ...