Search

Lítið búið að gerast á heimasíðunni….

Já lítið er búið að koma inn á síðunna undanfarið þar sem tölvukerfið var að stríða okkur. En það er komið í lag og ég mun næstu daga vinna upp tímann sem fór forgörðum. Vona að þið séuð ekki búin að gefast upp. Takk fyrir þolinmæðina

Marsdagskrá

Hér kemur marsdagskráin [gview file="http://skjol.is/wp-content/uploads/2017/03/Mars-2017.docx"]

Kvennaboð í tilefni konudags.

Við vorum með kvennaboð, 22. febrúar, í tilefni af konudegi sem var 19. febrúar. Á dagskránni var upplestur, söngur og gleði. Boðið var upp á sérrítár og konfekt.

Öskudagur

Við fengum góða heimsókn þennan dag. Par frá danskóla Reykjavíkur kom og tóku nokkur spor fyrir okkur. Einnig var upplestur og fróðleikur um Öskudag.

Hattaball á Eir

Það voru metnaðarfullir hattaeigendur sem mættu á hið sívinsæla hattaball. Þórður Marteinsson lék af sinni alkunnu snilld á harmonikku og voru margir sem stigu dans í takt við tónlistina.      

Söngstund á Torginu

Frábær mæting var á söngstund með Maríu á Eir í dag og mikið sungið við undirleik Einars Jónssonar. Það er mikið til í þessu vísnakorni eftir Guðmund Kr. Sigurðsson   Ljúfur söngur léttir, kætir lyftir huga yfir þraut. Söngur nærir, sífellt bætir svífur inn á töfrabraut. Söngstundirnar eru vikulegur viðburður,...

Valentínusardagurinn á Eir

Víða um heim var haldið uppá dag elskenda þann 14. febrúar sem við túlkum sem dag ástvina og dag til að minna okkur á  að elska lífið og okkur sjálf. Af því tilefni hélt Karlakórinn Stefnir tónleika á Eir við mikinn fögnuð elskenda og ástvina. Við þökkum Stefni kærlega fyrir komuna...

Þorrablót 9. febrúar

Við héldum þorrablót með söng, dans og gleði. Auðvitað var þorramatur í smakk ásamt söngolíu og öðrum drykkjum. Gleðin var ríkjandi eins og sést á myndunum.