Miðvikudaginn 20. júlí var grillveisla úti í porti fyrir starfsmenn í húsinu. Sól, tónlist og gleði í hjarta var ríkjandi eins og myndir sýna.
Söngstund á Eir
Það er kátt á hjalla á fimmtudögum þegar íbúar hittast við undirleik Einars Jónssonar í hópsöng. Gleðin er mikil hjá íbúum sem taka vel undir þannig að tíminn hreinlega flýgur frá okkur.
Söngstund í góða veðrinu
Þann 7. júlí höfðum við söngstundina, sem annars hefði verið inni í sal, úti við. En það viðraði svo vel þennan dag. Daginn áður hittumst við einnig úti og snæddum íspinna og sungum.
David Layton
Í lok júní kom góð heimsókn alla leið frá Seattle, en það var saxafónleikari á leið í Evrópureisu. Hann kíkti við á 5. hæðinni, spilaði og smitaði fólk með gleði sinni.
Ræktun
Í vor sáðum við nokkrum fræjum og forræktuðum innandyra. Svo í júní fengum við myndarlegan ræktunarkassa sem stendur í garðinum okkar. Í kassann fóru jarðaberjaplöntur, gulrætur, minta, radísur, klettasalat, graslaukur og salat. Einnig settum við kartöflur í potta. Innandyra vaxa svo tómataplönturnar okkar grimmt og eru farnir að myndast nokkrir...
Boccia undir berum himni
Veðurguðirnir voru heldur betur með okkur í dag, af því tilefni fórum við með alla út í garð til að spila Boccia. Sumir spiluðu á meðan aðrir fylgdust með, nutu verðurblíðunnar og kvöttu spilarana til dáða.
Þjóðdansasýning
Ísland er að halda Norðurlandamót í þjóðdönsum og íslenska þjóðdansafélagið hafði samband við okkur og bauðst til að koma með sýningu. Það voru tveir hópar sem dönsuðu fyrir okkur, annar frá Noregi og hinn frá Finnlandi. Það voru í kring um 80 heimilismenn sem komu niður á torg og...
Grillveisla starfsmanna Eirar
Hin árlega grillveisla starfsmanna Eirar var á síðasta fimmtudag og auðvitað á sólríkasta degi ársins. Grillið er að frumkvæði strákanna okkar: Högni, Vésteinn og Daníel sem sáu um að grilla börger í starfsfólkið. Vel var mætt og má segja að þessi árvissi viðburður sé mikið tilhlökkunarefni. Þökkum við strákunum fyrir frábæra grillveislu.
Saxafónleikari frá Seattle
Saxafónleikarinn David Layton frá Seattle er á tónleikaferðalagi um Evrópu og hafði samband við Eir og vildi endilega koma og spila fyrir okkur. Hann spilar á Sópran saxafón. Ríflega 90 manns mættu og skemmtu sér vel. David var svo hress og skemmtilegur og söng líka. Þökkum við honum mikið fyrir....
Söngstund Eirar
Það var fámennt en góðmennt hjá okkur í söngstundinni í dag, þar sem sungin voru uppáhalds lög margra viðstaddra sem tóku vel undir. Alltaf jafn gaman hjá okkur.