Vistmenn í Laugaskjóli fóru í dagsferð um Hvalfjörð miðvikudaginn 17. ágúst. Fyrst var farið að Hlöðum þar sem er herminjasafn. Var tekið vel á móti okkur. Við snæddum hádegisverð og skoðuðum safnið. Svo var ekið fyrir Hvalfjörðinn og næst stoppað við sumarhús í Kjósinni. Kaffisopi og meðlæti var sporðrennt á...
Reykjavík 230 ára
Föstudagur 19. ágúst Í tilefni af afmæli Reykjavikur þann 18. vorum við með kynningu í máli og myndum af uppbyggingu Reykjavíkur.
Töðugjöld
Fimmtudaginn 18. ágúst vorum við með töðugjöld í andyrinu. Í boði voru nýuppteknar kartöflur úr garðinum ásamt graslaukssmjöri. Þessu var skolað niður með mintutei. Þórður Marteinsson hélt uppi fjörinu með harmonikkutónlist. Það var sungið og dansað.
Horft á hlaup Anítu á Ólympíuleikunum
Mikil stemning myndaðist í húsinu þegar það fréttist að Aníta Hinriksdóttir væri að keppa í 800 m. hlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó fyrir hönd Ísland. Þegar miðvikudagsbíóið átti að hefjast ákváðum við að fresta bíóinu um nokkrar mínútur og var engin eftir sjá í því. Hvatningarorðin okkar skiluðu sér greinilega til Ríó, því...
Bíósýning
Í síðustu viku vorum við með bíó sýningu þar sem við sýndum fyrri helming heimildarmyndarinnar "Með hangandi hendi" um Ragga Bjarna. Myndin er gerð í tilefni 75 ára afmælistónleika Ragga Bjarna og þar fer Raggi yfir sinn feril og ræðir við gamla félaga ásamt því að gamlar klippur af Ragga...
Síldarævintýri
Föstudaginn 29. júlí. hittumst við í salnum og þar fór fram lestur og upprifjun á síldarævintýri landans. Í máli, myndum og myndbandsbrotum. Einnig var hlustað á tónlist tengda hafinu og sungið aðeins. Áttum góða stund saman
Svavar Knútur söngvaskáld
Svavar Knútur söngvaskáld kom fimmtudaginn 28. júlí og leyfði okkur að njóta nærveru sinnar með söng og gítar- og ukulele spili.
íssamvera
Miðvikudaginn 27. júlí nutum við veðurblíðunnar í garðinum. Fengum okkur ís og sungum saman.
Útihátíðar stemning
Þá er útihátíðin hafin í iðjuþjálfun á Eir! Búið er að tjalda með öllu tilheyrandi. Gestum og gangandi er velkomið að líta við uppi í iðjuþjálfun í næstu viku og rifja upp útilegustemninguna með heimilismönnum. Eigið góða verslunarmannahelgi. Útilegukveðjur, iðjuþjálfun og félagsstarf.
Ísdagur í sólinni
Það var aldeilis kátt í höllinni þegar sólin var hvað heitust þriðjudaginn 26. júlí. Ekki létum við þetta blíðskapaveður framhjá okkur fara heldur fliktust íbúar, gestir og starfsfólk út á verönd og létu sólina baka sig, sett var góð tónlist á og allir fengu ís. Allt stefnir í annan ísdag á miðvikdeginum ef spá gegnur eftir....