Haldið var bleikt bingó í tilefni af árveknisátaki krabbameinsfélagsins bleikum október. Að sjálfsögðu var bleika slaufan aðalvinningur dagsins og var hinn heppni hrókur alls fagnaðar með vinninginn. Einnig var karfa með góðgæti og var hún skreytt bleiku.
Bleiki dagurinn 14 október 2016
Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í hinum bleika októbermánuði. Föstudaginn 14. október hvetjum við alla sem viðkoma Eir og Hömrum til að sýna samstöðu með því að klæðast/ vera með eitthvað bleikt.
Tónleikar á Kjarvalstöðum
Iðjuþjálfun og félagsstarf fóru með nokkra heimilismenn á Kjarvalsstaði til að sjá tónleika með Ragnheiði Gröndal og manni hennar Guðmundi Péturssyni gítarleikara. Flutt voru falleg lög af nýjum diski Ragnheiðar ásamt laginu Ást sem hún gerði svo vinsælt árið 2003, nokkrir tóku undir með því lagi. Þessir tónleikar voru þeir...
Vöfflukaffi á 3. hæð austur
Mánudaginn 26. september var vöfllubakstur á 3. hæðinni, austurgangi. Mikil gleði og ánægja ríkti og lögðu nokkrir hönd á plóg. Til að mynda sáu 2 kjarnorkukonur um baksturinn og höfðu engu gleymt í þeim í efnum þó önnur væri 93 ára og hin 100 ára.
Handaklúbbur
Þessar 2 konur voru að fá hita á hendur og axlir, þegar þessi sæti hundur kom í heimsókn.
Söngskemmtun 22. september
Anna Sigríður Helgadóttir söngkona kom til okkar fimmtudaginn 22. september og leyfði okkur að njóta nærveru sinnar og söng.
Töðugjöld
Fimmtudaginn 15. september fóru fram Töðugjöld og slægjur á Eir sem heppnuðust mjög vel. Allir skemmtu sér konunglega. Það voru gerðar upphitunaræfingar undir leiðsögn Sigrúnar Jóhannsdóttur sjúkraþjálfara, dansað, hlegið, sungið og smakkaðar nýjar íslenskar kartöflur með smjöri. Fyrir dansi lék Þórður Marteinsson á harmonikku við mikinn fögnuð íbúa og kunnum við honum miklar þakkir...
Söngstund
Í dag sungum við lög sem tilheyra haustinu. Það var mikil gleði sem myndaðist með nýjan lagalista og var tekið vel undir í hverju lagi.
Nýtt tæki í sjúkraþjálfun
Skjúkraþjálfun Skjóls var að fá nýtt æfingatæki. Nustep er gott til að bæta hjarta og lungnastarfsemi og almenna færni. Gott er að komast í það og auðvelt að nota. Í tækinu er hægt að hreyfa handleggi og fætur í rólegum jöfnum takti sem hentar flestum. Við teljum að þetta tæki...
Sól og blíða
Við nutum veðurblíðunnar í dag, úti í porti. Borðuðum ís, spjölluðum og hlustuðum á góða tónlist.