Gerðubergskórinn sótti okkur heim og kunnum við þeim kærar þakkir fyrir. Kórinn var eins og nýútsprungin rós og voru þau klöppuð upp aftur og aftur af heimilsfólkinu. Gleðin skein af hverju andliti við fluttning laganna sem voru vel valin fyrir íbúa heimilisins.
Haustbasar
Við héldum haustbasar í salnum 20. október. Þar sem voru seld handverk eftir íbúa. Vöfflur og kaffi fyrir gesti. 2 kjarnakonur frá Laugaskjóli bökuðu vöfflur. Kaffihúsastemning myndaðist hjá okkur. Mikil ánægja hjá þeim sem komu.
Vöfflukaffi 4. hæð austur
Vöfflubakstur og góð samvera á 4. hæð Austur, mánudaginn 17. október. Kristín Eva og Þorbjörg bökuðu vöfflur. Vilborg hjálpaði að setja á borð. Siðan var snætt saman.
Bleikur dagur
Við héldum upp á bleika daginn hér á Skjóli föstudaginn 14. október. Klæddist starfsfólk og íbúar í bleiku. Einnig voru húsakynnin með bleiku ívafi.
Boccia
Það þurfti enginn hláturjógatíma eftir Boccia vikunnar, mikil gleði með dillandi hlátri heyrðist um allan salinn. Spilarar léku af list eins og í öll hin skiptin.
ATH ATH Haustbasar 20. október
Basarinn hefst kl 15 og stendur til kl 17. Ýmisskonar handverk verður til sölu ásamt kaffi og nýbökuðum vöfflum. ATh ekki er tekið við greiðslukortum.... einungis peningum
Bleikur dagur 14 okt.
Föstudaginn 14 október var bleikt þema á Eir og af því tilefni var ýmislegt bleikt tínt til og haft til sýnis í sal iðjuþjálfunar. Þessi glaðlegi litur vekur mikla lukku hjá heimilisfólki, gestum og starfsfólki og gefur lífinu svo sannarlega lit.
Raggi Bjarna syngur á Eir
Raggi Bjarna skemmti heimilisfólki og gestum á Eir í vikunni og vakti mikla gleði. Meistarinn tók lög eins og "Tondelejo", "Dagný" og rappaði meira að segja og fékk salinn með sér. Mjög vel heppnuð skemmtun og var þétt setið á Torginu góða. Þökkum við honum kærlega fyrir komuna og alla...
Málþing SFV
Málþing SFV verður haldið á Hótel Natura. 18. október kl 13:30 - 15:30
Málþing SFV
Málnig SFV: Er vilji til breytinga? 18 okt. kl. 13.30. - 15.30 á hótel Natura Til að sjá betur textann þá stækka upplausn.