Elstu börnin frá leikskólanum Brekkuborg komu og sýndu helgileik á hinni árlegu aðventustund Eirar. Góðvinur okkar Einar Jónsson spilaði á píanó og íbúar, starfsmenn og aðrir gestir sungu með.
Börn frá Suzukipíanóskólanum spiluðu á Eir
Börn frá Suzukipíanóskólanum í Grafarvogi ásamt Elínu Hannesdóttur kennara og aðstandendum sínum komu í heimsókn og leyfðu okkur að heyra falleg jólalög.
Söngvarar framtíðarinnar í heimsókn
Söngvarar framtíðarinnar heimsóttu Eir í vikunni og sungu fyrir íbúa og starfsmenn. Þau komu frá söngskóla Sessýar, og voru á aldrinum 5-14 ára. Við óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Karlakór Kjalnesinga kom í heimsókn
Karlakór Kjalnesinga heiðraði okkur með nærveru sinni á mánudaginn var. Þeir stóðu alveg undir væntingum en þeir hafa komið síðastliðin ár með jólatónleika hingað á Eir. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og einnig öllum íbúum, aðstandendum og öðrum gestum sem sáu sér fært að mæta.
Dagur íslenskrar tungu
Við héldum dag íslenskrar tungu hátíðlegan, sem var 16. nóvember. Við fengum góða gesti. Nemendur frá tónlistarskólanum í Reykjavík sem sungu og spiluðu á píanó. Einnig komu ritlistarnemar og lásu fyrir okkur sögur eftir sig. Að lokum lokum las Þórhalla nokkur ljóð.
Vöfflukaffi 5. hæð austurgangur
Mánudaginn 14. nóvember vorum við með vöfflubakstur og skemmtilegheit. Góð tónlist, spjall og allir að hjálpast að við verkið. Að baka vöfflurnar, þeyta rjóma, setja sultur í skál og leggja á borð.
Vinnudagur á Eir
Fjör og vinnusemi á föstudegi
Dagur íslenskrar tungu
Íslensk tunga var í heiðri höfð á ´Degi íslenskrar tungu. Við fengum góða gesti í heimsókn, Brynjólfur Gíslason frá Kíwanisklúbbnum Höfða í Grafarvogi færði dagdeildum Eirar 2 Ipada að gjöf til að nýta í starfsemi sinni, Einar Hafberg Ægisson sem er starfsmaður Íslandsbanka Höfðaútibúi kom og las fyrir okkur smásögu og...
Eir í heimsókn í handverksklúbbinn
Mánudaginn 31. okt kom góður gestur til okkar i handverksklúbbinn. Þetta er labrador tíkin Eir sem er í eigu sjúkraþjálfarans. Allir voru ánægðir með þessa heimsókn og kemur hún örugglega aftur.
Vöfflukaffi 4. hæð Vesturgangur
Mánudaginn 31 október bökuðum við saman vöfflur og áttum góða stund saman.