Search

Vöfflukaffi

Nú var komið að vöfflukaffi á 3 hæð norður og tóku heimilsmenn þátt í því að baka vöfflur. Kátt var á hjalla og nutu allir vöfflukaffisins.    

Söngstund á Eir

Söngstundin er alltaf jafn skemmtileg hjá okkur og er spenna alla vikuna hjá íbúum eftir næstu stund. Allir taka vel undir með söngnum og skemmta sér vel. Forsetaframbjóðandinn Halla Tómasdóttir heiðraði okkur með nærveru sinni eftir að söngstundinni lauk, kunnum við henni bestu þakkir fyrir.

Landsnetskórinn í heimsókn

Á hverju vori koma farfuglarnir til landsins eins og Lóan, Spóinn, Krían og fleiri kunnugir fuglar. Það er eins með kór starfsmanna Landsnets og kórstjórann Ingveldi Ýr, ekki gleymdu þau okkur þetta vorið frekar en þau fyrri. Við erum þeim mjög þakklát fyrir að hugsa til okkar og koma með...

Kvennahlaupið 2016

Í dag mánudaginn 30. maí þreyttum við Kvennahlaup ÍSÍ hér í Skjóli. Við fengum 2 herra í að aðstoða okkur við að ýta hjólastól og dreifa verðlaunapeningum. Við vörum mjög heppin með veður, sól og blíða. Einnig fengum við hvatningu af svölunum.

Vöffluboð í Laugaskjóli

Við vorum með skemmtilega samveru inn á Laugskjóli mánudaginn 23. maí. Vorum með spurninga leik spjall og gleði. Svo enduðum við á að baka vöfflur og snæða saman. 

Bíósýning vikunnar

  Það var þétt setinn bekkurinn á bíósýningu vikunnar. Heimildamyndin um Jóhann Risa var sýnd í bingósalnum 4. hæð.  

Vortónleikar 30 maí 2016

Vortónleikar á Torginu     Mánudaginn 30. maí   kl. 16:30 verður kór Landsnets undir stjórn Ingveldar Ýrar með tónleika. Allir velkomir

Hreyfivika Eir fór vel á stað

Hreyfivikan fór vel á stað, farið var út í göngu, gerðar æfingar inni með Jóhönnu sjúkraþjálfa,  dansað og sungið við undirleik Davíðs B. Guðbjartssonar. Það var fullt hús og endaði gleðin með góðri hressingu.  

Hattadagur

Við héldum hinn árlega hattadag föstudaginn var þann 20. maí. Flest allir klæddust mismunandi höttum sem gaf tilverunni líf og lit. Svo eftir hádegi kom Gerðubergskórinn í heimsókn og söng fyrir okkur. Það var mikið um húllumhæ og þegar mest var, þá var um 70 gestir í salnum og um...