Search

Ný stundatafla

Heil og sæl. Þá er haustið að nálgast og vetrarstarfið að taka við. Frá og með mánudeginum 24. ágúst tekur við ný stundatafla iðjuþjálfunar og félagsstarfs. Allar deildar hafa fengið töflu fyrir sína deild, sem og nafnalista yfir hvernær einstaka heimilismenn eiga að mæta í iðjuþjálfun. Morgunblaðalesturinn verður á sínum...

Grillveisla

  Grillveisla sumarið 2015 Starfsfólk stóð fyrir því að grilla lambalundir, með góðu meðlæti handa heimilismönnum á 2N og 2S og eftir á voru grillaðir bananar með ís í eftirrétt. Þetta heppnaðist mjög vel í sól og blíðu umvafin blöðrum og viltum blómum sem heimilismenn og starfsmenn týndu í móanum...

Útivera

Heimilisfólkið á Eir lætur sig ekki vanta út í garð þegar sólin lætur sjá sig. Við vorum svo heppin að fá hana Maríu G. til að koma og spila á gítar og taka nokkur sumarlög með okkur í síðustu viku. Að vanda var vel tekið undir. (meira…)

Kvennahlaup 2015

Okkur langar að þakka fyrir góða þátttöku og skemmtun í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ hér á Eir í síðustu viku.   Það voru um 100 konur sem tóku þátt, langömmur, ömmur, mömmur og dætur, frænkur og vinkonur. Einnig voru nokkrir herramenn sem tóku þátt. Elstu þátttakendurnir að þessu sinni voru heiðraðir...

Leiksýningin „Syngdu í dag“

Hér má sjá leikhópinn stilla sér upp. Þau komu til okkar á Eir með sýninguna „Syngdu í dag“. Það var margt um manninn á Torginu og mættu rúmlega 100 manns. Dagskráin samanstóð meðal annars af söng, gamanvísum, stuttum leikþáttum, dansi og ljóðalestri. Tóku áhorfendur virkan þátt í söngnum og hlógu...

Vorball á torginu

MIÐVIKUDAGINN 22. APRÍL SÍÐASTA VETRARDAG KLUKKAN 14:00 – 15:00 VERÐUR VETURINN KVADDUR OG SUMRI FAGNAÐ MEÐ BALLI Á TORGINU Á  1. HÆÐ GUÐMUNDUR HAUKUR LEIKUR FYRIR DANSI.  HVETJUM ALLA TIL AÐ PÚSSA RYKIÐ AF BALLSKÓNUM OG STÍGA DANS EÐA DILLA SÉR Í TAKT VIÐ TÓNLISTINA.

Hvað var í gangi um jólin

Í desember var mikið líf og fjör húsinu. Til þess að fá jólailminn í húsið voru bakaðar smákökur í iðjuþjálfun. Greinilegt var að það var folk með reynslu sem var þar að verki og brögðuðust kökurnar mjög vel. Einnig voru föndruð jólakort og gert ýmislegt annað skemmtilegt sem tilheyrir aðventunni....

Nýjar mottur mættar í hús

Þessar skemmtilegu þjálfunarmottur voru gefnar hingað á Eir af henna Sesselju Magnúsdóttur. Þær eru hannaðar með skynörvun fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma. Motturnar fóru á 3. hæð suður, 2. hæð norður á Eir og á Klörustofu í Hömrum. [quote align="left" color="#6F6F6F"]Fjölbreytt og skapandi verkefni hjá skemmtilegu fólki![/quote]

Árið hefst með látum!!

Þá er félagsstarfið hér á Eir að komast á fullt skrið á nýju ári. Það var gaman að sjá hve margir mættu á söngstund á Torginu. Það var vel tekið undir, sungin skemmtileg lög og hlustað á Erlu Þorsteinsdóttur, stúlkuna með lævirkjaröddina. [quote align="left" color="#6F6F6F"]Árið 2015 verður skemmtilegt og spennandi!...

Gjöf frá Lionsklúbbnum Frey

Nýlega færðu félagar í Lionsklúbbnum Frey, iðjuþjálfun og félagsstarfi Eirar, þrjár nýja spjaldtölvur frá Apple. Lionsklúbbnum eru færðar þakkir fyrir þessar höfðinglegu gjafir en spjaldtölvurnar verða nýtta í starfi með íbúum og endurhæfingargestum heimilisins.