Search

Dagur íslenskrar tungu

Þann 16. Nóvember var Dagur íslenskrar tungu, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og gerðum við á Eir okkur glaðan dag af því tilefni. Dagskrá var á Torginu þar sem farið var með vísur, fróðleik og gamanmál. Góð mæting var á skemmtunina og allir sælir eftir þessa stund.

Kór í heimsókn

Á mánudaginn kom Gerðubergskórinn til okkar á Eir. Það var virkilega gaman að hlusta á lögin, sem voru bæði þekkt og minna þekkt. Mjög vel var mætt á skemmtunina og myndaðist góð og falleg stemning. Við þökkum kærlega fyrir góða skemmtun.   Iðjuþjáflun og félagsstarf.  

Gefins garn

Við í iðjuþjálfun óskuðum eftir garni á dögunum, afgöngum sem safnast hefur upp í skápum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og þökkum við kærlega fyrir allt garnið sem við fengum. Nú verður aldeilis gaman að bretta upp ermar og vinna úr þessu. Við munum til dæmis prjóna fjallgöngusessur, eyrnabönd,...

Sungið, spilað og hlegið

Þau María og Sigurður komu aftur í heimsókn á Eir með gítar og harmonikku og spiluðu vel valin  lög sem flestir kannast við. Það var lifandi og skemmtileg stemning, þau María og Sigurður sögðu brandara á milli laga og virkilega skemmtileg dagskrá hjá þeim. Við þökkum þeim fyrir góða skemmtun....

Heilsuefling

Heilsueflingarnefndin er aftur komin á kreik eftir sumarhlé. Þessir hressu morgunhanar tóku brosandi og kátir á móti starfsmönnum þegar þeir mættu til vinnu í morgun (10. sept. 2015) og buðu upp á spínat-mangó-engifer orkudrykk ásamt gulrótum. Þær heita Ása Lind Þorgeirsdóttir iðjuþjálfi, Ylfa Þorsteinsdóttir sjúkraþjálfari og Gerður Anna Lúðvíksdóttir hjúkrunarfræðingur.

Gítar og harmonikku fjör

Þann 4. september komu þau María og Sigurður í heimsókn á Eir með gítar og harmonikku og spiluðu vel valin  lög sem flestir kannast við. Fólk tók vel undir í söngnum og ekki var hægt að stilla sig um að stíga nokkur dansspor. Með bestu kveðju Iðjuþjálfun og félagsstarf

Risa-sólblómið

Þá er komið að því. Risa-sólblómið er sprungið út fyrir framan iðjuþjálfun á 4. hæð. Blómið er rúmir 3 metrar á hæð og ægifagurt. Sólblóm eru heillandi plöntur sem lítið mál er að rækta á Íslandi. Sólblómið okkar er gleðigjafi sem brosir til þín. Hvetjum ykkur til að gera ykkur...

Rifsberjahlaup

Á dögunum var búið til rifsbergjahlaup í iðjuþjálfun. Það voru myndarlegar konur í Eirarholti sem bjuggu til einstaklega gott hlaup úr nýtíndum berjunum sem loksins höfðu náð að þroskast. Meðfylgjandi er uppskriftin af rifsberjahlaupinu. Góða skemmtun.