Um áramót horfum við til baka yfir farinn veg, íhugum hvað gekk vel, hvað við viljum bæta og setjum okkur ný markmið fyrir nýtt ár. Þegar litið er yfir farinn veg er ljóst að árið 2020 gekk ekki sinn vanagang eins og mörg árin þar á undan. En einhvern veginn...
Fyrri bólusetningu lokið
Kæru aðstandendur Þessi næstsíðasti dagur ársins er gleðidagur á öllum heimilunum okkar enda var lokið við að bólusetja gegn COVID-19 alla þá íbúa sem óskuðu eftir því. Þetta eru tímamót. Fánar voru dregnir að húni og skálað var í ljúffengu konfekti á öllum deildum. Tilhlökkun og von um bjartari tíð,...
Fyrri bólusetningu lokið
Það var gleðiefni þegar lögreglan kom á Skjól í morgun með bóluefni gegn Covid-19. Móttakan var þaulskipulögð og íbúar og starfsmenn allra hæða undirbúnir. Bólusetningin gekk vonum framar og það var ekki laust við að mörgum væri létt. Ljósmyndari Morgunblaðsins tók mynd af elsta Íslendingi landsins, Dóru Ólafsdóttur, 108 ára,...
Bólusetningar gegn COVID-19 að hefjast
Kæru aðstandendur íbúa Eirar. Bólusetningar gegn COVID-19 eru hafnar á Íslandi og íbúar hjúkrunarheimila eru í þeim forréttinda hóp að tilheyra forgangi. Þvílík stund! Bólusett verður á EIR á morgun, miðvikudaginn 30. desember og því verður lokað fyrir heimsóknir þann dag. Er það vegna þess að bóluefnið er viðkvæmt og...
Gleðileg jól!
Starfsmenn Skjóls senda íbúum, aðstandendum, velunnurum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól. Ársins 2020 verður sennilega lengi minnst. Okkar bestu óskir um farsæld og frið á komandi ári. Gætum hvert að öðru um hátíðarnar og alla aðra daga. Gleðileg jól!
Heimsóknir um jólin
Á Skjóli verða heimsóknir heimilar um jólin sem hér segir: Aðfangadagur, jóladagur og annar í jólum: Tveir gestir mega koma og stoppa í allt að 2 klst. á bilinu 13:00-17:30 og 19:30-22:00. Athugið að þetta eru sömu tveir gestirnir alla dagana. Gestir verða að hringja á undan sér og skrá...
Undirbúningur bólusetningar
Í miðjum jólaundirbúningi hafa þær góðu fréttir borist að von sé á bóluefni til landsins vegna Covid 19. Íbúar hjúkrunarheimila eru í forgangshópi og samkvæmt þeirri áætlun sem gerð hefur verið verða íbúar Skjóls bólusettir öðru hvoru megin við áramótin 2020-2021. Þessi tímasetning er háð því að ekkert fari úrskeiðis...
Heimsóknir um jól og áramót
16. desember 2020 Kæru aðstandendur Aðventan og jólin er sá árstími sem við óskum þess að vera með okkar nánustu. Í ár er aðventan óvenjuleg og fram undan eru jólin með breyttu sniði. Samráðshópur á vegum sóttvarnalæknis hefur lagt línurnar vegna jólahalds á hjúkrunarheimilum og við förum eftir þeim. Þetta...
Heimsóknir um jól og áramót
16. desember 2020 Kæru aðstandendur Aðventan og jólin er sá árstími sem við óskum þess að vera með okkar nánustu. Í ár er aðventan óvenjuleg og fram undan eru jólin með breyttu sniði. Samráðshópur á vegum sóttvarnalæknis hefur lagt línurnar vegna jólahalds á hjúkrunarheimilum og við förum eftir þeim. Þetta...
Aðventa
Við í sjúkra-, iðjuþjálfun og félagsstarfi höfum verið að dreifa jóla og gleðianda um Skjól á aðventunni. Erum búin að halda ball, jólabingó, jólasöngstund og aðventustund með smákökubakstri og góðri tónlist frá Svavari Knúti. Svo fengum við aðventuvagn Þjóðleikhússins í heimsókn. Fleiri myndir eru á facebooksíðu heimilisins