Reykjavík, 5. mars 2021 Eir hefur ráðið til starfa Eybjörgu Hauksdóttur sem framkvæmdastjóra Eir öryggisbúða auk þess sem Eybjörg mun sinna rekstrar- og stjórnunarverkefnum fyrir Eir, Skjól og Hamra hjúkrunarheimili. Eybjörg er með BA og MA gráður í lögfræði frá Háskóla Íslands og með réttindi til að flytja mál fyrir...
Starfsmenn Skjóls bólusettir
Næstkomandi fimmtudag, 11. febrúar, verða starfsmenn Skjóls bólusettir gegn Covid-19. Þetta er fyrri bólusetningin af tveimur en seinni bólusetningin verður eftir þrjá mánuði. Það hyllir því undir afléttingu samkomutakmarkana á Skjóli sem er gleðiefni. Þeir íbúar sem fengu fyrri bólusetninguna í janúar verða bólusettir í næstu viku. Nánari tímasetning verður...
Nýjar heimsóknarreglur
Kæru aðstandendur Nú hafa lang flestir íbúa Skjóls verið bólusettir tvisvar gegn COVID-19 og því tímabært að rýmka þær takmarkanir sem hafa verið á heimilinu. Hafa verður í huga að starfsmenn hafa ekki verið bólusettir, sumir íbúanna hafa ekki haft möguleika á bólusetningu og að nýir íbúar eru að öllum...
Þorri
Við í iðjuþjálfun og Félagsstarfi fórum á hverja hæð á bóndadaginn. Fengum okkur smá "söngvatn"og sungum nokkur lög. Spjölluðum saman um þorrann og rifjuðum upp gamla tíma.
Seinni bólusetning 21. janúar
Á morgun, fimmtudaginn 21. janúar, verður seinni bólusetning íbúa á Skjóli vegna Covid-19. Fyrri bólusetningin gekk mjög vel og urðu engin veikindi á íbúum í kjölfarið. Eftir sem áður verður fylgst vel með íbúum eftir bólusetningu. Flensulík einkenni eru oft fylgifiskur bólusetninga en þau ganga yfirleitt fljótt yfir. Eftir um...
Það styttist í breytingar – höldum út!
Takmarkanir á heimsóknum vegna Covid-19 – uppfærðar leiðbeiningar Heilir og sælir kæru aðstandendur, Í næstu viku verða þeir íbúar sem þáðu fyrstu bólusetninguna gegn COVID-19 bólusettir í annað sinn. Viku eftir það getum við gert ráð fyrir að íbúar hafi náð fullnægjandi mótefnasvari gegn veirunni. Þá verður mögulega vonandi hægt...
Nýr framkvæmdastjóri lækningasviðs
Reykjavík, 07. Janúar 2021 Frá og með 1. janúar 2021 tók Ólafur Samúelsson öldrunarlæknir við starfi framkvæmdastjóra lækningasviðs á Eir, Skjóli og Hömrum og óskum við honum velfarnaðar í starfi. Um leið þökkum við Sigurbirni Björnssyni fráfarandi framkvæmdastjóra lækningasviðs fyrir frábært starf og fögnum við því að hann muni áfram...
Gleðilegt ár!
Um áramót horfum við til baka yfir farinn veg, íhugum hvað gekk vel, hvað við viljum bæta og setjum okkur ný markmið fyrir nýtt ár. Þegar litið er yfir farinn veg er ljóst að árið 2020 gekk ekki sinn vanagang eins og mörg árin þar á undan. En einhvern veginn...
Fyrri bólusetningu lokið
Það var gleðiefni þegar lögreglan kom á Skjól í morgun með bóluefni gegn Covid-19. Móttakan var þaulskipulögð og íbúar og starfsmenn allra hæða undirbúnir. Bólusetningin gekk vonum framar og það var ekki laust við að mörgum væri létt. Ljósmyndari Morgunblaðsins tók mynd af elsta Íslendingi landsins, Dóru Ólafsdóttur, 108 ára,...
Gleðileg jól!
Starfsmenn Skjóls senda íbúum, aðstandendum, velunnurum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðileg jól. Ársins 2020 verður sennilega lengi minnst. Okkar bestu óskir um farsæld og frið á komandi ári. Gætum hvert að öðru um hátíðarnar og alla aðra daga. Gleðileg jól!