Á Skjóli verða heimsóknir heimilar um jólin sem hér segir: Aðfangadagur, jóladagur og annar í jólum: Tveir gestir mega koma og stoppa í allt að 2 klst. á bilinu 13:00-17:30 og 19:30-22:00. Athugið að þetta eru sömu tveir gestirnir alla dagana. Gestir verða að hringja á undan sér og skrá...
Undirbúningur bólusetningar
Í miðjum jólaundirbúningi hafa þær góðu fréttir borist að von sé á bóluefni til landsins vegna Covid 19. Íbúar hjúkrunarheimila eru í forgangshópi og samkvæmt þeirri áætlun sem gerð hefur verið verða íbúar Skjóls bólusettir öðru hvoru megin við áramótin 2020-2021. Þessi tímasetning er háð því að ekkert fari úrskeiðis...
Heimsóknir um jól og áramót
16. desember 2020 Kæru aðstandendur Aðventan og jólin er sá árstími sem við óskum þess að vera með okkar nánustu. Í ár er aðventan óvenjuleg og fram undan eru jólin með breyttu sniði. Samráðshópur á vegum sóttvarnalæknis hefur lagt línurnar vegna jólahalds á hjúkrunarheimilum og við förum eftir þeim. Þetta...
Aðventa
Við í sjúkra-, iðjuþjálfun og félagsstarfi höfum verið að dreifa jóla og gleðianda um Skjól á aðventunni. Erum búin að halda ball, jólabingó, jólasöngstund og aðventustund með smákökubakstri og góðri tónlist frá Svavari Knúti. Svo fengum við aðventuvagn Þjóðleikhússins í heimsókn. Fleiri myndir eru á facebooksíðu heimilisins
Upplýsingar um jólahald væntanlegar
Í dag, þriðjudag, voru settar nýjar reglur um sóttvarnir sem gilda til 12. janúar. Margir aðstandendur hafa spurt hvernig jólahaldi verði háttað á Skjóli og hvort óhætt sé að íbúar fari út af heimilinu. Á föstudaginn, 11. desember verður fundur í samráðshópi sóttvarnarlæknis um hjúkrunarheimili. Öðru hvoru megin við helgina...
Óvenjuleg aðventa
4. desember 2020 Heilir og sælir kæru aðstandendur. Núna er óvenjuleg aðventa og að öllum líkindum óvenjuleg jól fram undan. Starfsmenn heimilanna gera sitt ítrasta til að gera aðventuna fallega, huggulega og hátíðlega fyrir íbúana. Meðal annars eru jólalög spiluð á öllum deildum og aðventukaffi á hverjum sunnudegi. Iðjuþjálfun og...
Í aðdraganda aðventu
Á Skjóli er verið að undirbúa aðventu og ýmsa skemmtilega viðburði sem haldnir verða innan húss í aðdraganda jóla. Íbúar baka smákökur með aðstoð iðjuþjálfa og þeir sem hafa bæði vilja og getu stendur til boða að búa til ýmiss konar jólaskraut. Við syngjum saman og sameiginlegar vistarverur íbúa verða...
Óbreyttar heimsóknarreglur
Vegna fjölda fyrirspurna er rétt að taka fram að reglur um heimsóknir á Skjóli eru óbreyttar. Hver íbúi getur fengið tvær heimsóknir á viku, eina klukkustund í senn, náins aðstandanda. Heimsóknir eru skipulagðar í samráði við hverja deild fyrir sig til að fyrirbyggja margmenni og nauðsynlegt er að hafa samband...
Kveðjuveisla Guðnýjar forstöðumanns hjúkrunar
Föstudaginn var, 16. október var haldin lítil kveðjuveisla, í samræmi við sóttvarnarreglur, fyrir Guðnýju Helgu Guðmundsdóttur forstöðumann hjúkrunar. Guðný hefur starfað hér frá opnun Skjóls og var hún leyst út með gjöfum og kveðjumyndbandi sem starfsfólk var búið að útbúa. Í lokin afhenti hún Dögg Harðardóttur lyklana og óskaði henni...
Ánægjuleg tilkynning – nýr aðstoðardeildarstjóri
Orchids A. Pomera hefur tímabundið tekið upp starfstitilinn ,,aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar” á 3. hæð Skjóls. Orchids hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á Skjóli í tæp tvö ár og hefur staðið sig með eindæmum vel. Takið vel á móti Orchids í þessu nýja hlutverki!