Svanhildur Jakobsdóttir og félagar komu og héldu tónleika á Eir við mikla hrifningu íbúa, aðstandenda og starfsmanna. Góð stemmning myndaðist í salnum þegar hún tók lagið "Segðu ekki nei" og fleiri gamla góða slagara. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og vonum að þau komi sem fyrst aftur.
Gerðubergskórinn heimsótti Eir
Góðvinir okkar í Gerðubergskórnum héldu tónleika á Eir við mikinn fögnuð áheyrenda. Yfir 100 manns sáu sér fært að mæta á tónleikana og er það með betri mætingu fram að þessu. Þökkum við kórnum kærlega fyrir komuna.
Dagur íslenskrar tungu
Dagur Íslenskrar tungu var léttur og skemmtilegur á Eir. Við fléttuðum ljóðum inn í störf okkar í iðjuþjálfun og félagsstarfi alla vikuna og enduðum vikuna með því að heiðra ljóðskáld fyrri tíma í söngstund. Eirarvinurinn Einar Jónsson píanóleikari lék af sinni einskærri snilld ein og honum er einum lagið. Í ár var efnt til...
Halldór Friðrik rithöfundur heimsótti Eir
Rithöfundurinn Halldór Friðrik Þorsteinsson kom í A-hús Eirar og las uppúr bók sinni "Rétt undir sólinn" ferðasaga. Íbúar og aðrir áheyrendur voru mjög ánægðir með frásögn hans. Halldór Friðrik ætlar einnig að lesa uppúr bók sinni fyrir íbúa og gesti B-hús, Eirarholts og Eirarhús. Við þökkum honum kærlega fyrir komuna...
Bleiki dagurinn
Bleiki dagurinn var að sjálfsögðu haldinn á Eir og klæddust margir bleiku í tilefni dagsins. Starfsfólk sjúkraþjálfunar á Eir voru sérlega skrautleg eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.
Ball á Eir
Miðvikudaginn 30.ágúst mætti hljómsveitin Hafrót og spilaði fyrir dansi til þess að fanga komu haustsins. Kátt var á hjalla og mikið dansað og sungið.
Hlý gjöf frá starfmanni Íslandsbanka
Við á Eir og í Skjóli erum svo heppin að eiga góða vini á góðum stöðum. Vinir okkar hjá Íslandsbanka færðu okkur á dögunum fullan kassa af hekluðum sjölum sem ein starfskona bankans hafði gert. Við sendum þeim hlýjar kveðjur og heimiliskonur og menn hlakka til að sveipa um sig...
Sumarblíða
Veðrið lék við íbúa, gesti og starfsmenn Eirar í vikunni og var því haldin samvera úti í garði. Boðið var upp á pinna ís á mánudegi og þriðjudag var boðið upp á ávaxtadrykk. Þessa blíðviðrisdaga var haft fuglaþema,fuglahljóðaspilið dregið fram ásamt söng um fuglana og sumarið. Við óskum eindregið eftir...
Söngkonan Anna Sigríður og píanóleikarinn Aðalheiður heimsóttu Eir
Met mæting var á Torginu þegar vinkonurnar Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari og Anna Sigríður Helgadóttir söngkona mættu á Eir. Það var mikið hlegið, sungið og trallað á skemmtuninni og fóru allir mjög glaðir á deildar sínar. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sjá þær aftur. Til gamans...
Hin árlega jónsmessuganga
Jónsmessuganga var haldin á Eir í hressandi veðri og var markmið dagsins að efla hreyfingu hjá öllum sem tengjast Eir hjúkrunarheimili. Við fórum í stutta göngu með Stefán Ómar Jakobsson harmonikkuleikara í fararbroddi, héldum svo inn þar sem allir fengu létta hressingu í boði Sónar e.hf. Ylfa sjúkraþjálfari stýrði liðkunaræfingum...