Search

Kaffihús á Eir

Dagdeild Borgasel stóð fyrir kaffihúsastemmingu á Torginu á Eir. Auðvitað mætti allt fólkið af dagdeildinni í vöfflur með rjóma, einnig létu íbúar, starfsfólk og aðrir gestir sig ekki vanta í fjörið. Þetta þótt vel til takast og voru margir íbúar og aðstandendur á þeirri skoðun að þetta ætti að vera...

Ball á Eir

Kærar þakkir fyrir frábæra mætingu á ballið í dag. Við höldum að enn einu sinni hafi mætingarmetið verið slegið, amk voru yfir 100 íbúar mættir! Hljómsveitin Hafrót skapaði mikla stemningu ásamt ykkur starfsfólki! Takk fyrir að aðstoða við að bjóða upp og dansa, klappa og brosa. Það vakti miklar tilfinningar hjá mörgum...

Harmonikka á fimmtudagssöngstundinni

Söngstundarinnar er beðið með eftirvæntingu af íbúum og gestum Eirar. Einar fór á kostum á nikkunni síðasta fimmtudag og var mikil ánægja með stundina. Stórvinur Eirar lét sitt ekki eftir liggja frekar en aðra fimmtudaga. Mætti hann með Nikkuna og var mikið fagnað af íbúum, starfsfólki og gestum.   nikkanvideo...

Gjöf frá Siggu

"Góðar gjafir berast reglulega til iðjuþjálfunar og félagsstarfsins á Eir. Um daginn kom hún Sigríður Siggeirsdóttir færandi hendi, fullur vagna af ýmiskonar handavinnudóti. Nú verður sannarlega hægt að finna upp á skemmtilegri afþreyingu, föndri og handavinnu. Við þökkum henni Siggu og dætrum hennar kærlega fyrir gjöfina."

Brugðið á leik

Við erum aldrei of gömul að bregða á leik. Fjárfest var í þessari glæsilegu fallhlíf á dögunum sem þjálfar og gleður líkama og sál. Hér fyrir neðan má sjá myndband af fallhlífinni.  Fallhlíf á myndbandi.

Ýmsir atburðir í apríl

Aprílmánuður var með fjölbreyttu sniði á Eir. Í fyrstu vikunni var haldið blátt bingó og blár dagur. Dymbilvikan var lágstemt með slökun, hitabökstrum og handanuddi einnig var haldið páskabingó þar sem vinningshafar fengu páskaegg frá Nóa og Síríus í vinning.  Elísabet harmonikkuleikari í hljómsveitinni Pétur og pæjurnar kom og lék...

Kammerkór Mosfellsbæjar kom á Eir

Kammerkór Mosfellsbæjar var með tónleika á Eir um helgina. Kórinn fór vítt og breitt í söngnum, þau sungu lög á ýmsum tungumálum eins og íslensku, spænsku, afrísku, ensku og fl. Það myndaðist mikil stemning meðal íbúa og annarra gesta á þessum fjörugu tónleikum kórsins. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og vonum...

Hattaball á Eir

Það voru metnaðarfullir hattaeigendur sem mættu á hið sívinsæla hattaball. Þórður Marteinsson lék af sinni alkunnu snilld á harmonikku og voru margir sem stigu dans í takt við tónlistina.